Hjödda
Þjóðfræði
11.01.2008 14:23:34 / hjödda

Nýtt ár, ný íbúð

Þá er árið 2008 gengið í garð, og við Svenni erum flutt á Langholtsveginn. Við erum voðalega ánægð með endurbæturnar á íbúðinni enda var allt saman tekið í gegn, en það er nú ýmislegt eftir líka en þetta er orðið voðalega flott. Myndir koma síðar. Prófin hjá mér gengu bara vel er mjög sátt, já maður kemur sjálfum sér á óvart stundum. Jólafríið var líka voðalega fínt í rólhegheitum heima í Hólmi. Skólinn byrjar svo aftur á mánudaginn að fullum krafti. Nóg að gera framundan. Olga Kornikova býr hjá okkur núna, hún er orðin félagsmálafrömuður á félagsvísindastofnun, ef ykkur langar að hitta píuna þá er hún með viðtalstíma í pottinum í Vestubæjarlauginni milli klukkan 20:00-22:00 á virkum dögum. Þarna sjáið þið dömuna með fullan pott af fólki í vandamálapakkanum.

Hér er Olga á góðu skriði í lauginni;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 21:15:28 / hjödda

Nú skal segja...

He-hemm, já batteríið í myndavélinni minni ákvað að sinn tími væri nú búin, eða myndavélin sjálf með einhverja stæla svo að ég er ekki en búin að setja inn myndirnar frá ferð hinna fræknu systra, eða heimildamynd um niðurrifið á Langholtsvegi. En það kemur vonandi síðar, kannski eftir próf.

Annars er bara allt ágæt að frétta, það er vægast sagt búið að vera BRJÁLAÐ að gera.  Erum búin að koma búslóðinni okkar fyrir í flutningarbíl, mamma og Guðný og co. komu í gær og hjálpa okkur að klára að þrífa og pakka niður. Pabbi kom svo seint í gærkvöldi og náði í mig og mömmu. Svo að nú er ég heima í Hólmi að læra! Já þau björguðu mér alveg, gott að eiga góða að. Annars væri ég örugglega en að pakka. Ég var svona ekkert sérlega sátt um daginn þegar að ég loks áttaði mig á því að ég þyrfti að fara að flytja, mér leið svo vel í Gnoðarvoginum, en þetta er allt að koma núna. Svona er fólk bara misjafnt að geta ekki sætt sig við einn smáhund! Við erum að taka hina íbúðina alveg í gegn, svo á meðan erum við með íbúð í Kópavogi eða Svenni þar og ég svona með annan fótinn. En mikið verður nú gott þegar prófin eru búin en það er 18. des og þá er ég komin í frí til 14. janúar!

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 18:18:46 / hjödda

Valencia-London

Ég ætla að stinga af á mánudaginn með Guðnýju systur. Við ætlum að fara og heimsækja Lillý og Roberto í Valencia. Verðum þar í 6 daga og verðum svo 3 daga í London. Komum svo til baka 7.nov.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 11:49:34 / hjödda

Langholtsvegur er það.

Þar sem að tölvan mín lá niðri í sumar sökum annríkis var ekki mikið um það að verið væri að blogga. Það gekk vel með hvolpana, en því miður dó Tinni litli stuttu eftir að við létum hann frá okkur, Bjartur er orðin norsari og Oliver hefur það gott hjá Rósu í Grundarfirði.

Fleira í fréttum er að það að við Svenni urðum að selja íbúðina í Gnoðarvogi vegna þess að við fengum ekki leyfi frá nágrönnunum fyrir Birtu, já crazy lið. Við eigum að afhenda 1. des. Eftir mikla leit fundum við okkur svo aðra íbúð í gær þar sem að tveggja kílóa hundar eru velkomnir! Langholtsvegur 200 er það og hér er slottið fáum afhent um miðjan nóvember. Þetta er á jarðhæð.


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 18:07:10 / hjödda

Hvolpamyndir

GuðnÝ og Rebekka RÁn voru hjÁ okkur um helgina, það var kÍkt Á ÚtsÖlur, nÖrdaleikinn, sund og Í nokkrar golfbÚðir. Hvolparnir braggast mjÖg vel, við erum komin með "hvolpapÍu". Hanna fÆnka hans Svenna er hÉrna hjÁ okkur, alveg að redda mÁlunum. Um helgina erum við að fara á ÆttarmÓt hjÁ systkinum pabba Í Bjarkarlundi, verðum í fellihÝsi ásamt GuðnÝju og co.

Rebekka RÁn með hvolpana:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 11:19:55 / hjödda

Sorglegt

Því miður dó einn hvolpurinn. Það var tíkin Dimma og var hún eina tíkin í hópnum, þetta gerðist seint á föstudagskvöld. Hún hafði voðalega lítið drukkið hjá mömmu sinni og tók heldur ekki spena þó maður reyndi að hjálpa henni greyinu. Það kom dýralæknir að kíkja á hana, en það var því miður orðið of seint, henni var líklegast ekki ætlað að lifa, litla anganum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 16:04:06 / hjödda

Hvolpaland

Birta gaut í morgun fjÓrum litlum sÆtum hvolpum. Ég fÓr Út um klukkan sjÖ í vinnuna þÁ var hÚn eitthvað Á stjÁ svo hringir Svenni í mig um nÍuleytið, þÁ var hÚn bÚin að gjÓta tveimur inn Í skÁp! En þetta tÓk svo um þrjÁ tÍma. Þeir eru alveg pÍnku ponsu litlir og sÆtir:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 13:21:11 / hjödda

Cats

Tvisvar sinnum er ég búin að lenda í því að inni í þvottarhúsi, að ofan á þurrkaranum er ógeðslegur köttur, sami köttur og kom hingað unn um daginn (sjá: færslu hérna neðar 11.04.2007)

Fyrra skiptið var fyrir svona ca. 3-4 vikum, þá var ég að koma inn í þvottarhús og hitti þar dóttur nágrannana sem býr ekki hér og var að spjalla við hana. Snúrurnar voru fullar af þvotti svo ég sá ekkert upp á þurrkarann okkar (sem er ofan á þvottarvélinni og okkar vélar eru alveg við gluggann, hentugt fyrir ógeðslega ketti!). Jæja en ég fer að huga að þvottarvélinni, lít svo upp og sér þar köttinn liggja í makindum sínum ofan í balanum sem var ofan á þurrkaranum, vá hvað mér brá. Það sama gerðist núna rétt áðan, þegar ég var að fara að þvo (ath. mér finnst ekki leiðinlegt að þvo, svo ég er ansi oft þarna inni).  Þá lá þessi *f* köttur ofan á þurrkaranum og glotti á mig og aftur öskraði ég og gargaði á hann, út, út, út. Næst fer svona fyrir þessu ógeði! Og það skal taka fram að þessi köttur er með bjöllu og vel feitur, þetta er ekki útigangs köttur, svo að vertu heima hjá þér! Jakk.


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 15:58:44 / hjödda

1.- 3. júní 2007

Vil byrja á að óska pabba til hamingju með daginn þann 1. júní, aldur er ekki tekinn fram en ykkur er velkomið að giska.  

Helgin er búin að vera róleg, er í fríi í dag og ástandið á heimilinu er svona, það tók greinilega á Svenna greyið að ryksuga og Birta litla er með óléttuna svo að hún er ansi þreytt þessa dagana.

Á föstudaginn var heljarinnar partý hjá Intrum, gleymdi því miður myndavélinni. En það sem var meðal annars á dagskrá var indverskt hlaðborð, kennsla í magadans, helíum kútur og armbeygjukeppni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 19:17:57 / hjödda

Hvar skal byrja?

Síðan 8. maí er ég búin að bralla margt og mikið.Ég var í bakskólanum/deildinni í Hólminum í tvær vikur eða frá 7.-18. maí. Það var mjög fínt og bakið er miklu betra, en annað mál með ökklann því miður.  

16.maí fórum við Svenni í (ó)vissuferð með Intrum, vinnunni hans Svenna. Það var farið í River Rafting og ég sem ætlaði ekki að þora sökum heilsubrests og lítils hjarta, skellti mér nú með, jú jú og hoppaði niður 4 metra háa kletta beint ofan í Hvítá. Þetta var alveg geggjað gaman mæli með þessu:)

Um þar síðustu helgi vorum við Svenni bara tvö upp í Efsta –Dal með Birtu að taka því rólega, ég byrjaði svo að vinna mánudeginum eftir í Lyfju Smáratorgi og lýst bara vel á það.

 

Í fyrradag var litlu dúlluna þeirra Hólmfríður og Inga skírð og fékk daman nafnið Embla María.

 

Það sem er svo fram undan í sumar er Færeyjarferð með þjóðfræðiskörungum í enda Júlí og vonandi geri maður nú eitthvað fleira skemmtilegt í sumar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 16:24:35 / hjödda

Kosningar 2007

Það er víst vel greinilegt hvar X-ið mitt á að fara og mjög greinilegt hvar það á ekki að fara.

Annað hef ég ekki um málið að segja.

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 30%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 93.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 30%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%

Slóðin er: http://xhvad.bifrost.is/

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 10:38:28 / hjödda

Home sweet Hólm.

Ég er heima í Hólmi þessa dagana, að brasa við að skrifa ritgerð. Sumarið hefur ekki en látið sjá sig hér en engu að síður er alltaf gott að koma heim og fá bestu pizzu í heimi al la Guðný.

Svo fer ég í bæinn aftur á morgunn og þá tekur próflestur við. Skólinn er búin og það eru blessuð prófin eftir, veit svo ekkert almenninlega hvað ég geri í sumar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 20:50:51 / hjödda

Æði...

Ég er tvíburi, tvíburar eiga það víst til að fá æði fyrir einhverju ákveðnu en fá svo ógeð. Þetta er eitt af því sem mér finnst eiga mjög vel við mig hvað stjörnumerkin varðar. Einhvertíma borðaði (drakk) ég ekki annað en skyr.is jarðaberja en fékk svo ógeð, og get ekki sett þetta inn fyrir mínar varir.

Út á Spáni var æðið þetta "hollustu" kex.

En núna er það tatata:

Ananas eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei læra að borða, en svona er þetta, hver veit nema ég eigi eftir að drekka Malt einn daginn:!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 12:46:48 / hjödda

Föstudagurinn 13.

Ég er ekki í skólanum á föstudögum og sef þess vegna ansi oft út. En hann Svenni vaknaði klukkan átta í morgunn, fyrsta sinn sem hann þarf að vakna á undan mér síðan ég veit ekki hvenær, þannig ég skellti mér bara á fætur líka! Ótrúlega dugleg og er búin að vera að taka til og svona, allt annað en að skrifa rigerð hmm. En "strákurinn" er komin með vinnu í Intrum og er alveg í skýjunum með það8) eins og sést hér


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6